Færsluflokkur: Vísindi og fræði
Um gagnsemi/mikilvægi óhefðbundinna lækninga
13.5.2011 | 15:54
Ég ætlaði að fara að standa við loforð um að skora á Gylfa í Símabæ í rökræður um gagnsemi óhefðbundna lækninga, þegar ég áttaði mig á því að hann er ekki lengur hér á blogginu.
Hver hefur áhuga á að ræða þetta málefni við mig á blogginu og vera þá sá sem talar fyrir óhefðbundnum lækningum?
Koma svo!
Kuklvæðing Bylgjunnar - ábyrgð miðlanna
27.9.2010 | 09:18
Ég skrifaði grein fyrir Vantrú.is um ábyrgð miðlanna á ógagnrýninni umfjöllun um kukl.
Sjá: Kuklvæðing Bylgjunnar - ábyrgð miðlanna
Í ljósi þess að margt fólk eyðir í neyð sinni stórfé í allskyns loddaraskap þykir mér það hljóta að eiga kosta dálitla siðferðilega yfirlegu að ákveða að útvarpa gagnrýnislausu blaðri um kukl á borð við það sem fjallað er um í þættinum Í bítið á þriðjudögum.
Vísindi og fræði | Breytt 28.9.2010 kl. 11:26 | Slóð | Facebook
Kuklvæðing Bylgjunnar - annar hluti
21.9.2010 | 13:00
Er Bylgjan að kynna kukl og svikamyllur frá glæpamönnum á flótta undan réttvísinni* sem gagnleg heilsuráð?
Í morgun tók morgunþáttur Bylgjunnar, Í bítið, á móti henni Ingibjörgu Sigfúsdóttur í annað sinn til að tala um heilsuráðin á Heilsuhringurinn.is. Ég fjallaði aðeins um það í síðustu viku hverslagt fræði eru reifuð á þeirri síðu og hvað það er merkilegt að þáttastjórnendur á Bylgjunni skuli telja mikilvægt að ota þessum upplýsingum að hlustendum.
Að þessu sinni var blóðfita tekin til umfjöllunar og Ingibjörg sagði frá því hvernig hún hefði "lent í" rannsókn hjá Hjartavernd þar sem blóðfita hennar mældist 8,5% [sic - blóðfita er ekki mæld í prósentum] en mætti helst ekki vera mikið yfir 6%. Það kom henni á óvart, þar sem hún hélt sig vera að borða holla fæðu og því lét hún í framhaldi mæla sig hjá kuklara með SCIO Biofeedback-tæki ("orkutíðni tæki"). Tækið á að hafa greint vöntun á ýmsum snefilefnum í henni og í framhaldi ákvað hún að taka ráðleggingum af Heilsuhringnum um að fara að innbyrða óvenju mikið magn vítamína auk þess að moka í sig fjölómettuðum fitusýrum, kalki, magnesíum, kalíum, krómi og fleira.
Það er áhugavert að Ingibjörg skuli kalla það "meðhöndlun" að fara til aðila sem beitir þessu svokallaða SCIO Biofeedbacktæki (öreinda lífssvörun kalla þeir þetta á íslensku) sem aðallega er sagt mæla hluti, en það er einmitt mjög algengt í kuklinu að ekki er gerður skýr greinarmunur á því að greina hluti og að meðhöndla þá. Reyndar er ekki gerður skýr greinarmunur á sérlega mörgu í kuklinu, en tínum þetta samt til eitt af öðru.

SCIO-Biofeedback sýnist mér að falli að öllu leyti undir það sem læknirinn Steve Barrett á Quackwatch kallar: Quack "Electrodiagnostic" Devices. Slík tæki eru jafnan sögð mæla "ójafnvægi í orku" og fleira í þeim dúr.
Many claim to determine the cause of any disease by detecting the "energy imbalance" causing the problem.
Af Heilsuhringnum:
Með SCIO tækninni er hægt að mæla orkulegt ójafnvægi í líkamanum sem getur verið að hafa áhrif á heilsufar einstaklinga t.d. næringarlega þætti eins og steinefni, vítamín og amínósýrur, svo og eiturefni, sníkjudýr, hormónajafnvægi, bakteríur og veirur.
Steve segir að viðlíka tæki sem hann prófaði mæli það eitt hversu fast nemanum er þrýst á húðina og síðan bulli sá sem mælir eitthvað um mælinguna, kannski mest til að selja vítamín úr eigin skápum? SCIO búnaðurinn mælir hinsvegar leiðni í líkama á milli tveggja póla, sem segir manni álíka lítið um ástandið á líkamanum og að pota bara í hann með priki.
Um sölu á þjónustu með tækjum af þessu tagi segir hann:
The practitioners who use them are either delusional, dishonest, or both. These devices should be confiscated and the practitioners who use them should be prosecuted. If you encounter any such device, please report it to the state attorney general, any relevant licensing board, the FDA, the FTC, the FBI, the Better Business Bureau, and any insurance company to which the practitioner submits claims that involve use of the device.
Það ætti sem sagt að lögsækja fólk fyrir svona vitleysu að mati Steve Barrett læknis, enda ekki flókið að líma nema á fólk og segja síðan að það þurfi að borða meira af trefjum og taka inn omega3 fitusýrur og því alls ekki óhugsandi að um blekkingarstarfsemi sé að ræða.
Annað sem er skemmtilegt við kuklið, fyrir utan að oft er lítill greinarmunur gerður á meðhöndlun og greiningu, er að lítill greinarmunur er einnig gerður á því að lýsa því hvernig hlutir virka og hvað þeir gera. Skoðið til dæmis meinta virknilýsingu Heilsuhringsins á SCIO Biofeedback tækinu hér.
Ef vel er að gáð kemur í ljós að í öllum orðaflauminum segir ekki eitt orð um hvernig tækið virkar, heldur eru þetta að mestu stikkorð og gervivísindi sem hafa yfir sér djúpvitran brag, en eru yfirleitt óviðeigandi og merkingarlaus í þessu samhengi, s.br:
Hvernig afstressar SCIO tækið líkamann?
Öreinda lífsvörun ,,Quantum Biofeedback" er byggt upp á öreinda efnafræði. Þessi tækni sýnir fram á það orkulega ójafnvægi sem hefur áhrif á heilsufar einstaklinga. Meðan á meðhöndlun stendur, mælir SCIO margar samhliðamælingar eins og rafspennu, rafstraum, viðnámsþol, vökvun, oxun, róteindaþrýsting, frávik, rafeinda þrýsting, samviðnám, ómun og andóf svo eitthvað sé nefnt.
Ef einhver er í vafa um að orð eins og róteindaþrýstingur eða samviðnám í þessu samhengi eru merkingarlaus þvæla, mæli ég með því að sá hinn sami hafi samband við einhvern með eðlisfræði eða efnafræðimenntun og fái það staðfest að þetta er mótsagnarkennt bull.
Sé farið inn á síðuna sem Heilsuhringurinn bendir á til að lesa meira um SCIO Biofeedback kemur í ljós að þar er ekki bara verið að selja búnað heldur viðskiptamódel. Hlekkurinn á undan þeim fyrir búnaðinn sjálfan heitir SCIO Business Building Materials og þar kemur í ljós að hægt er að kaupa allt sem hugsast getur af aukahlutum og kynningarefni, en það fer minna fyrir upplýsingum um meginbúnaðinn. Enda verið að selja gróðamyllu en ekki lækningaraðferð (hvort heldur greiningar eða meðferðar).
Til að taka af allan vafa um eðli hugsunar þeirra sem framleiða og selja SCIO lausnir vil ég benda á brjóstastækkunarviðbót sem boðið er upp á að kaupa við græjuna. Um efnisduluna með silfurþráðunum segir hjá Quantum Fulfillmennt Center:
The Breast Booster™ A – B cup BB1 allows for complete work of several breast stressors in a modest and complete sense. The Breast Booster™ inserts slip individually and comfortably under any clothing by the client allowing for a modest session. Our 8’ MC8 or 15' MC15 point probe wire attaches to a simple “Quick Release” magnetic clasp. Fully lined with 97% conductive silver fabric and easily cleaned, a tissue alone, or sprayed with our dielectric spray is recommended. We contend that the Breast Booster™ series are not just for beauty enhancements; but may be used to reduce stressors that impede breast wellness. IMPORTANT: Use of this item requires a Universal Point Probe Wire Connector either MC8 or MC15 that is not included.
Að venju segir ekkert um hvernig það á að stækka brjóst að leiða í þau lágspennu í gegnum silfurþræði. Ætli það sé ekki hlutverk meðferðaraðilans að bulla einhverja viðeigandi skammatfræðiþvælu til að slá ryk í augu viðskiptavina sinna?
En eftir að hafa farið til SCIO meðferðar varð Ingibjörg Sigfúsdóttir sem sagt sannfærð um að henni bæri að kanna snefilefnainntöku sína og fór þá út í að taka inn miklu meira af vítamínum en ráðlagt er af Manneldisráði og breytti engu öðru að eigin sögn. Það segir hún á þremur mánuðum hafa fært blóðfitu hennar vel undir hættumörk. Um það að er gott eitt að segja, þótt það sé vitaskuld álitamál hvort fólk eigi að vera að mæla með slíku við alla, þegar aukaverkanir af of mikilli inntöku vítamína og annarra fæðubótarefna eru margar vel þekktar - en það truflar a.m.k. ekki Heilsuhringinn.is því að sögn Ingibjargar fer það sem heilbrigðisstéttin hér á landi mælir með "ekki alltaf saman við það sem kemur fóki að gagni".
Það er buið að vera svo gaman að fjalla um Biofeedback tækið að ég hef nánast alveg látið það undir höfuð leggjast að gagnrýna ótalmargt annað í stuttu en bull-mettuðu viðtalinu. Að lokum skulum við því nefna til sögunnar Dr. Sandra Cabot sem Ingibjörg mælir með að hlustað sé á. Dr. Cabot þessi dásamar mikið hráfæði og um það segir á heimasíðu hennar:
Try to eat some raw fruits or vegetables with EVERY meal, as they contain living enzymes, vitamin C, natural antibiotic substances and anti-cancer phyto-nutrients.
"Lifandi ensími" er skemmtileg hugtakavitleysa sem líf- og efnafræðingar hafa gaman af að krukka í. Um það segir t.d. Lawrence J. Forti B.S./M.S. ChE:
Among raw-food enthusiasts, there is a very popular myth that enzymes are "alive" and these so-called "living enzymes" somehow (never supported with biochemistry) assist the body in digesting food.
[..]
Enzymes are proteins, so are not alive just like any other chemical is not "alive"; perhaps they are a very special class of chemicals, but there is no credible scientist that will claim they are "alive". Thus, "living enzymes" exist only in the domain of contemporary nutribabble.
Hvernig er annað hægt en að elska orðið "nutribabble"?
* Viðbætt
Á Quackwatch er sjálfur William Nelson tekinn til umfjöllunar, en hann er einmitt heilinn á bakvið SCIO Biofeedback. Samkvæmt þeim upplýsingum flaggar Nelson allt að 8 fölskum doktorsgraðum víða um netheima og flúði Bandaríkin árið 1996 eftir að hafa verið kærður fyrir mail fraud.
Taken together, the above sources claim that Nelson received eight doctoral degrees between 1980 and 1993 when he moved to Hungary. As far as I can tell—none of these came from an accredited school. Records from the U.S. District Court of the District of Columbia indicate that Nelson was indicted for mail fraud in June 1996 and was placed on the fugitive list several months later.
Criminal Docket for Case #: 96-CR-209-ALL, USA v. Nelson. USDC District of Columbia, filed June 25, 1996.
Í Bandaríkjunum er búið að banna innflutning á SCIO Biofeedback búnaðinum og hann er einnig bannaður í Kanada:
Legally speaking The EPFX or QXCI or SCIO is under great legal pressure due to the false registrations and claims made by both the manufacturer and sales people alike.
The EPFX or QXCI or SCIO is illegal for importation in The USA and has also been banned in Canada by Health Canada. The European Union is currently investigating The EPFX/SCIO device for mis branding and misrepresentation regarding their 93/42/EEC Medical Device Registration. #
Hér er grein í The Seatle Times um William Nelson og svikamylluna hans: How one man's invention is part of a growing worldwide scam that snares the desperately ill
Ben Goldacre á Bad Science fjallar um málið.
Bloggari nokkur úti í heimi hefur tileinkað heilt blogg því að afhjúpa Biofeedback: http://epfx.blogspot.com/
Vísindi og fræði | Breytt 24.9.2010 kl. 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Bylgjan tekur bull til vikulegrar umfjöllunar
14.9.2010 | 16:19
Í morgun mætti Ingibjörg nokkur Sigfúsdóttir í hljóðver Bylgjunnar og fjallaði um vefinn Heilsuhringurinn.is þar sem búið er að hrúga inn allskyns dóti sem mér sýnist í fljótu bragði að sé að stórum hluta húmbúk og þvæla. Um þetta safn kuklgreina ætlar Bylgjan nú að fjalla vikulega og taka þá eitt ákveðið efni fyrir í hvert sinn.
Þáttarstjórnanda tókst í morgun að halda því fram að greinarnar séu eftir lækna og sérfræðinga, en það er að sjálfsögðu ekki tilfellið, heldur eru þetta greinar eftir kuklara sem oft hafa litla sem enga viðurkennda menntun (a.m.k. ekki í læknisfræði). Og einhverra hluta vegna er Bylgjunni mikið í mun að sem flestir kynni sér þessi meintu fræði.
Ég ætla að fjalla um þennan vef þegar mér gefst tími, kannski í takt við umfjallanir Bylgjunnar, svona til mótvægis við stjórnlausa óskhyggjuna. En þangað til að ég hefst handa mæli ég með einni fáránlegustu grein sem ég hef lesið, hún er sprenghlægileg og lengir þannig hugsanlega lífið með því að valda hlátrasköllum:
Lifandi vatn eftir Berg Björnsson - "reikimeistara".
Um að "lífmagna" vatn í glasi:
Ef þú ert í vafa um hvernig þú sendir kærleiksríka hugsun til vatnsins, byrjaðu þá á því að hugsa um það eða þann sem þér þykir vænst um og þegar þú ert altekin af þeim kærleika sem þú berð í brjósti til viðkomandi, sendir þú þessa hugsun til vatnsins (það virkar). Fyrst til að byrja með getur verið nauðsynlegt að halda í 20-30 mínútur en með æfingu verður þú betri orkuleiðari og kemst af með styttri tíma. Það er líka hægt að kíkja með öðru auga á t.d. sjónvarp á meðan. En það erfleira sem kemur þér til hjálpar og gerir það að verkum að þetta þarf ekki að vera mjög tímafrekt.
Heppilegt að maður getur horft á sjónvarp á meðan með öðru auga!
Í framhaldi mæli ég með grein á Vantrú um þennan sama Berg Björnsson.
-
Einn höfundanna á Heilsuhringurinn.is, hún Lilja Oddsdóttir, hefur áður komið við sögu á þessu bloggi - í eftirfarandi greinum:
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
Glænýr og endurbættur Stjörnufræðivefur
13.9.2010 | 16:25
Það blundar í hverjum manni djúp lotning fyrir geimnum og þeim hugmyndum sem geimvísindin færa okkur um óskiljanlegar óravíddir hans, svo látið ekki glænýja uppfærslu á einum skemmtilegasta og fróðlegasta vef landsins framhjá ykkur fara: http://www.stjornuskodun.is
Ég er ekki frá því að hann sé jafnvel áhugaverðari en þetta blogg mitt!
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 16:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Smá vísindablogg
26.8.2010 | 09:40
Eftir að hafa leitt hugann einum of mikið að forkastanlegri ályktunarhæfni ofsatrúarfólks, er ágætt að lesa hugleiðingar jarðbundins vísindamanns, þar sem hóflegar* ályktanir eru dregnar af gögnum og ekki gengið allt of langt** í fullyrðingunum.
Skemmtileg lesning fyrir fróðleiksþyrsta:
- What were T. rex’s tiny little arms for anyway?
- Earth’s biodiversity is driven by more than just Survival of the Fittest
Samkvæmt fyrri greininni þykjast menn sjá að risa-risaeðlan T. rex hafi iðulega brotið undarlega litlu handleggina sína, svo eitthvað hefur gengið á hjá þessum kvikindum!
-
*/** hóflegar og ekki of langt að mínu hógværa mati.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 09:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Bulla lithimnufræðingar um Forn-Egypta?
11.7.2010 | 21:47
Ég er aðeins búinn að vera að leita að gögnum sem styðja þá hugmynd að lithimnugreiningarfræði megi rekja til Forn-Egypta og Kínverja eins og margir í kuklinu (óhefðbundnum lækningum) halda fram.
Í síðustu færslu fjallaði ég um titlagræðgi stofnanda School of Natural Medicine, Farida Sharan, sem íslensku lithimnufræðingarnir Lilja Oddsóttir og Linda Líf Margrétardóttir rekja meinta þekkingu sína á lithimnum til.
Lilja Oddsdóttir þessi skrifaði í grein sem Morgunblaðið birti árið 2000:
Elstu heimildir um lithimnuathuganir má rekja til Forn-Egypta og Kínverja. Nútíma lithimnuvísindi byggja á athugunum lækna á 19. og 20. öld sem í gegnum reynslu sína gáfu gaum ýmsum merkjum og litabreytingum sem urðu í lithimnunni við aðgerðir, slys eða lyfjagjafir. (feitletrun mín, KT)
Þessar staðhæfingar fær Lilja Oddsdóttir sjálfsagt frá Farida Sharan, því á heimasíðu School of Natural Medicine segir:
Developed primarily by medical doctors in Europe in the last century, the earliest known charts of the iris were painted on ceramic and carved in stone by the Ancient Babylonians and Egyptians. Now Iridology is a recognized part of Naturopathic training in Europe, the United States and Australia.
Viðlíka hugmyndir má finna víða á netinu á vefsíðum um lithimnugreiningar. Sem dæmi má nefna cnri.edu þar sem segir:
Iridology, or the study of the iris, goes back for several centuries. Written records and silver plates that date back to Egypt and are kept in the Vatican’s library and Harvard University are the first known educational materials on iridology. The Egyptian priests at the time had an extraordinary knowledge of medicine.
In 1922, G. Carter discovered pictures of the iris on these silver plates when he explored Tutankhamen’s tomb (1400-1392 B.C.). El Ax, the pharaoh’s priest, was an ancient iridologist who popularized the art. Thanks to his work, diagnosis of the eye spread from Egypt to Babylon, Tibet, China and other regions (E. Velkhover). (feitletrun mín, KT)
Mín reynsla er sú að nánast allt sem kuklarar segja er rangt eða byggt á hæpnum heimildum, svo ég fór að grafast fyrir um þessar heimildir með gamla góða googlinu.
Hvernig sem ég gramsa á sagnfræði, lækninga eða alfræðivefjum finn ég einfaldlega engar heimildir um þessar staðhæfingar, nema vitaskuld á vefsíðum um lithimnugreiningar og aldrei geta menn þar um slóðir heimilda sem hægt er að glöggva sig á.
- Á vef wikipedia um lækningarfræði Forn-Egypta segir margt skemmtilegt, en ekki er þar stafkrók um lithimnugreiningar að finna.
- Á vef wikipedia um æðstu presta guðsins Amun á tímum Tutankhamen segir ekkert um hinn "fræga" prest El Ax.
- Á vef wikipedia um Tutankhamen segir heldur ekkert um fræga prestinn El Ax, né umrædda silfurplötu.
- Samkvæmt þessum og þessum lista gæti Ax átt að vera Akh, en þá er samt ekki átt við æðstaprest af neinu tagi.
- Ekkert finn ég síðan um G. Carter, E. Velkhover eða silfurplötuna annað en vísanir í síður um nútímakukl.
Skýringin á þessu gæti verið sú að umfjöllun kuklara um fræði sín er oft svo móðukennd að smæstu sameiginleg einkenni fræða eru kölluð skyld eða þau sömu. Þannig er iridology (lithimnufræði) oft skilgreind sem dæmi um holistic (heildræn) meðferðarúrræði og greiningaraðferðin sjálf ekki aðgreind frá meðferðinni sem kynni að vera blanda af sálfræði- og jurtameðalameðferð. Í þeirra augum verður það því nóg að finna aldnar egypskar heimildir um jurtameðul til að segja megi að Forn-Egyptar hafi stundað lithimnugreiningar. Þess háttar orðaleikir eru að mínu mati afskaplega óheiðarlegir eða vekja hjá mér vissar efasemdir um gæði hugsunar þess sem segir.
Meint tengingin við Kína held ég að hljóti að vera viðlíka þunn, en margir kuklarar tala um tungulestur í Kína sem tengingu við lithimnufræðin fyrir utan ríka hefð þar fyrir allskyns náttúrulækningum. Hvort tveggja þykir mér hæpið að kalla grunn nútímalithimnufræði - en það slær þó ekki við veikleika tengingarinnar við Forn-Egyptaland, en sú tenging virðist varla vera fyrir hendi.
Það er auk þess áberandi hvernig reynt er að tengja þetta ákveðna kukl við stór nöfn úr sögunni og við landsvæði þar sem andleg málefni eru rómuð. Í greinunum er gjarnan talað um Tutankhamen, æðstupresta egypskra guða og Nepal sem dæmi, en það eru allt einkennilega vinsæl hugtök til að tengja kuklið við, sem aftur vekur grunsemdir um að farið sé frjálslega með staðreyndir.
Getur einhver upplýst mig um annað?
En ykkur til fróðleiks, þá segir á vefsíðum efasemdarmanna og wikipedia að þessi lithimnugreiningarhugmynd sé í besta falli um 350 ára og í versta falli um 150 ára, en ekki 2.000-5.000 ára eins og kuklið vill vera láta.
Sjá einnig grein Vantrúar um lithimnulestur og áskorun Vantrúar á þær Lilju og Lindu um að sanna að þær standi undir nafni.
Vísindi og fræði | Breytt 12.7.2010 kl. 09:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Lithimnugreining - gráður lærimeistaranna
10.7.2010 | 00:24
Vantrú.is er þessa dagana að bjóða lithimnufræðingunum Lindu Líf Margrétardóttur og lærimeistara hennar, Lilju Oddsdóttur, verðlaun fyrir að sýna fram á að fræðigrein þeirra sé til einhvers brúkleg. Sjá: Áskorun
Áskorunin kom til eftir að viðtal við Lindu Líf var birt á forsíðu Allt, innblaðs í Fréttablaðinu, sjötta þessa mánaðar. Fyrirsögnin þar var: "Augun eru kort líkamans".
Ég googlaði hana Lilju Oddsdóttur og fann Morgunblaðsgrein frá 13. okt. 2000 sem svipar skemmtilega til viðtalsins í Fréttablaðinu. Fyrirsögnin þá var: "Augun eru spegill sálarinnar". Í greininni segja Lilja Oddsdóttir og Kristbjörg Elín Kristmundsdóttir:
Fræðin í dag búa yfir hafsjó af áhugaverðum upplýsingum sem veita okkur forvitnilega innsýn í manninn. Það sem sjá má í lithimnunni er mjög fjölbreytt og snertir heildargerð mannsins (styrkleika og veikleika). Meðal annars má sjá tengsl líkamskerfa, ástand líffæra, uppsöfnun eiturefna, sýrustig líkamans og bólgumyndanir. Oft má sjá samband tilfinninga, huga og líkama í lithimnunni og hvar jafnvægi ríkir og hvar ójafnvægi ríkir á ákveðnum sviðum hjá einstaklingi. Lithimnan sýnir hvaða líffæri eða líkamskerfi eru viðkvæmust fyrir hrörnun. Út frá þessum upplýsingum getur lithimnufræðingurinn ráðlagt um mataræði og lífstíl sem fyrirbyggjandi aðgerðir og til að bæta heilsuna. Lithimnan getur kennt manni margt um ástand líkamans og styrkleika og veikleika persónunnar. Það má segja að mikilvægt hlutverk greinandans sé að fræða fólk um það ástand sem manneskjan er í og hvaða skref þarf að taka til að bera ábyrgð á eigin heilsu.
Þetta eru stór orð. Skoðum aðeins skólana sem Lilja rekur þekkinguna til sem gerir henni kleift að horfa í augu fólks og sjá: "tengsl líkamskerfa, ástand líffæra, uppsöfnun eiturefna, sýrustig líkamans og bólgumyndanir".
Á Heilsubankinn.is segir:
Lilja nam lithimnufræði og náttúrulækningar frá School of Natural Medicine frá 1997 til 2000 og útskrifaðist hún sem lithimnufræðingur (Master Iriologist)
Lilja nam hvítufræði frá Grand Medicine 2005 - 2006
Lilja hefur einnig lokið námi í Ilmkjarnaolíumeðferð frá School of Natural Medicine og útskrifaðist hún sem kjarnaolíuþerapisti síðastliðið vor
Heimasíða School of Natural Medicine er afskaplega skemmtileg. Ég veit svo sem ekki hvort Lilja sótti UK eða USA útgáfuna, en Farida Sharan nokkur er a.m.k. viðriðin þær báðar, enda verður ekki þverfótað á netinu fyrir skólum og heimasíðum sem selja ímyndina hennar Faridu - og það sýnist mér vera pakkinn sem Lilja og nú Linda Líf eru að kaupa og selja.
Athugum þá trúverðugleika Farida Sharan, sem kenndi Lilju sem kenndi Lindu Líf.
Um Faridu segir á bloggi hennar:
Dr. Farida Sharan, ND, is the Founder and Director of the School of Natural Medicine, an author, educator, natural physician, mystic dancer and yoga teacher, international lecturer and seminar leader. Her training includes Esalen massage, Gestalt Therapy, European Massage & Beauty treatments, Reflexology, Shiatsu, Yoga Teacher Training with Yogi Bhajan, Polarity Therapy, Iridology, Naturopathy and Herbal Medicine (MH) with Dr. Raymond Christopher and his the School of Natural Healing, and Iridology with Dr. Bernard Jensen.
[..]
Farida was appointed a Director of the Journal of Alternative and Complementary Medicine to represent Iridology, awarded a doctorate (MD) from Medicina Alternativa in Copenhagen, Denmark and appointed a Fellow of the Guild of Naturopathic Iridologists.
Titillinn hennar er sem sagt: Dr. Farida Sharan MDMA ND MH. Þetta er svakalegur titill og hlýtur að segja okkur að hún sé gríðarlega lærð og klár kona. Hún er sem sagt með doktorsgráðu og á eftir nafni hennar segir MDMA ND MH. MD þýðir venjulega medical doctor, en í hennar tilfelli er doktorsgráðan heiðursnafnbót sem gefin er fyrir óskilgreint MD frá Medicina Alternativa in Copenhagen, Denmark sem virðist ekki vera til - nema hugsanlega sem skúffufyrirtæki í anda Magma Energy í Svíþjóð.
Dr. og MD(MA) er sem sagt merkingarlaust píp í hennar tilfelli og sitjum við þá eftir með ND MH. Samkvæmt öðrum texta um hana er MH master herbalist og ND mun vera naturopathy. Þekking hennar á auganu, lithimnunni, taugum og öðru því tengdu virðist því ekki vera fengin neinstaðar frá - þó hefði maður haldið að smávegis læknisfræði gæti komið að gagni fyrir konu sem ætlar að leggja það fyrir sig að greina lithimnur í fólki og segja því hvað ami að því. En ef eitthvað er að marka googlið mitt er því ekki að heilsa hjá Faridu.
Á purehealth.com segir um Faridu:
My first experience with Iridology was when I was told my eyes had turned blue!!! I later learned the cleansing that had healed the cause of the breast cancer had also released the yellow and brown pigments from my iris, and I no longer needed to wear glasses!
[..]Farida Sharan is the author of Iridology — a complete guide to diagnosing through the iris and to related forms of treatment, published by HarperCollins[..]
Ég fann kynningarúrdrátt úr bókinni sem er vel þess virði að glugga í - fyndnari lesning er vandfundin.
-
Þetta er að mínu viti klassískt fyrir meinta upphafsmenn óhefðbundinna lækninga. Þeir notast við titla og gráður af meiri græðgi en þekkist í vísindaheiminum, en þegar betur er að gáð kemur ósjaldan í ljós að það er lítið sem ekkert á bakvið þetta prjál þeirra.
Næsta grein um lithimnufræði: Bulla lithimnufræðingar um Forn-Egypta?
Vísindi og fræði | Breytt 12.7.2010 kl. 13:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Lygar Jónínu Ben á Bylgjunni í morgun
23.6.2010 | 21:29
Jónína Benediktsdóttir fékk að svara fyrir sig og Detoxið í viðtali á Bylgjunni í morgun (23.06.2010), eftir að hafa komið afskaplega illa út úr síðasta viðtali á sama miðli þegar Matthías Halldórsson landlæknir svaraði lygum hennar fullum hálsi í beinni útsendingu. Að þessu sinni fékk Jónína þó að vera í friði fyrir andmælum og gat látið lygarnar flakka nánast alveg óhindrað, sem hentar henni líklega mun betur en hitt.
Jónína skóf ekkert af hlutunum þarna frekar en fyrri daginn og lét ýmislegt vaða um fólk og samskipti sín við það sem ekki stenst skoðun. Lítum aðeins á herlegheitin, en þó bara nokkra punkta, viðtalið er svo mettað af bulli og lygum að ég hef ekki tíma til að taka það allt fyrir.
Lygi nr. 1
Jónína segir í viðtalinu góða:
Ég hef ekki nokkurn áhuga á að vera í hnútuköstum við landlækni, eða nokkurn læknir, ég vil gjarnan samvinnu og upphaflega eru sem sagt samskiptin við landlækni þess eðlis að ég er að leitast eftir samvinnu. Ég vildi bjóða honum í heimsókn, hitta hann, útskýra fyrir honum meðferðina og tengsl mín við Pólland og þá pólsku lækna sem ég hef verið að vinna með, mjög hæfileikaríkt og duglegt fólk, en hann svaraði mér ekki.
[..]
Ég viðurkenni mætavel að þegar ég var ítrekað búin að reyna að fá fund með honum, ítrekað reyna að fá hann til mín og kynna það sem ég er að gera og fékk aldrei nein viðbrögð - af opinberum starfsmanni. (feitletrun mín, KT)
Í greinargerð landlæknis um Detoxið segir landlæknir frá samskiptum sínum við Jónínu og hvernig hún óskaði eftir að hitta hann til að ræða áhuga hennar á að "skipta um kúrs" og breyta meðferðinni í viðurkennda "detox-læknismeðferðarstöð".
Svar landlæknis í lok árs 2008 var svohljóðandi:
Krafan sem nú er gerð til allrar nýrrar meðferðar í heilbrigðiskerfinu er að hún sé staðfest með gagnreyndri læknisfræði (evidence-based medicine), það er að rannsóknir hafi verið gerðar á vísindalegan hátt og um meðferðina hafi verið birtar vísindagreinar í virtum ritrýndum vísindaritum. Þannig hefur Landlæknisembættið birt einar 30 klínískar leiðbeiningar um ýmis svið meðferðar (t.d. astma, sykursýki o.s.frv.) eftir mikla vinnu helstu sérfræðinga við athugun á þeim vísindaniðurstöðum sem fyrir liggja. Tilfinning okkar nægir ekki, enda hefur t.d. komið til okkar fólk sem telur sig geta læknað allt frá áfengissýki og einhverfu með sérstökum aðferðum. Fyrsta skrefið væri því að þú tækir saman vísindagreinar af þessu tagi og sendir okkur. Allar heilbrigðisstofnanir hafa lækna og hjúkrunarfræðinga í forsvari samkvæmt lögum og því þyrfti einhver slíkur að vera með þér í ráðum ef um heilbrigðisþjónustu væri að ræða. Hins vegar er auðvitað til margs konar hjálp fyrir sjúklinga, sem þeir geta hugsanlega haft talsvert gagn af, og vil ég alls ekki gera lítið úr slíkri hjálp en á meðan við getum ekki greitt úr sameiginlegum sjóðum suma þá meðferð sem veitt er af löggiltum heilbrigðisstarfsmönnum og byggist á miklum vísindarannsóknum (t.d. tannlækningar og sálfræðiþjónustu) er ég ekki bjartsýnn á þátttöku ríkisins í þjónustu sem ekki hefur þann bakgrunn.
Allar götur síðan, eins og sjá má í greinargerð landlæknis, hefur embættið óskað eftir upplýsingum frá Jónínu um rannsóknir sem staðfesta sannleiksgildi fjölmargra auglýsinga og yfirlýsinga Jónínu og fyrritækis hennar um ágæti Detoxmeðferðarinar. Jónína hefur hinsvegar ekki gert nokkra tilraun til að svara þeim óskum öðruvísi en með því að bjóðast til að sýna landlækni persónulega hvað þetta sé fín meðferð og svo hefur starfsfólk hennar sent töluvert af tölvupósti um hvað meðferðin sé nú ágæt.
Eitt af svörum Jónínu til landlæknis var svona:
Agneska hefur einu sinni komið til Íslands og hélt hér einn fyrirlestur um Detoxmeðferðina.
Hún stundar ekki og hefur aldrei stundað lækningar hér !!! Við erum ekki fávitar þó svo að þannig skrifi Svanur og Íris um okkur og þú þegar færi gefst.
Hún er yfirburða læknir eins og allir þeir Íslendingar sem notið hafa góðs af þekkingu hennar og hafa fengið að kynnast henni.
Allir dáðst einnig af þekkingu hennar á lyfjum, sjúkdómum og úrræðum. Hún er hinsvegar eitt spurningamerki þegar kemur að lyfjakokteilum þeim sem ávísað er á íslenska sjúklinga af mörgum þeim sem þú vakir yfir og berð ábyrgð á.
Mín skoðun, og fleiri, er að Svanur þarfnist geðrannsóknar við. Hann hefur ítrekað sýnt í skrifum sínum áráttuhegðu hvort sem það snýr að Siðmennt (félag trúleysingja) eða Detoxmeðferðinni sem að hann hefur ekki kynnt sér á annan hátt nema með útúrstnúningum af lestri heimasíðunnar. Ég hef haft nóg annað að gera en að heimfæra heimasíðuna mína en nú er það komið.
Ég legg til að þú kynnir þér hvað ég er að gera hér áður en þú eyðir orku þinni í svona bull.
Sjálf hef ég boðist til þess að útskýra fyrir þér þessa meðferð. Þú hefur ekki sýnt því nokkurn áhuga og ert að mínu viti ekki starfi þínu vaxinn. Endar ertu að hætta og það að níða það sem vel er gert í heilsugeiranum verður örugglega þitt síðasta verk !
Ég tek t.d. aldrei lyf af fólki !!! Það eru lygar og dylgjur.
Samvinna mín við pólska lækninn fer fram í Póllandi og kemur þér ekki við, hvað þá þessum sem virðast ekki þola það að fólkið hjá mér er yfir sig ánægt, það gengur vel í rekstrinum, fólk sem þolir ekki að hér tekur fólk á sínum málum.
Ef þú og þetta fólk heldur áfram þessu einelti á hendur mér, starfsfólki mínu og fyrirtæki mun ég kæra þig og þau til dómstóla fyrir ítrekaðan atvinnuróg.
Læknastéttin í mínum huga hefur ekki einkarétt á því að hjálpa fólki til bættrar heilsu eða linna þjáningum þess þó vissulega geri flestir læknar það mjög vel.
Ég mun senda fjölmiðlum afrit af okkar samskiptum þar sem þú vilt yfirleit ræða Detoxáhuga þinn í fjölmiðlum. Best væri að þú létir mig alveg í friði, ég rek hótel en ekki sjúkrahús, ég fæ ekki krónu frá ríkinu en annað má segja um gjaldþrota heilbrigðiskerfið og þá 30 milljarða sem kollegar þínir létu íslendinga bryðja lyf fyrir á síðast ári.
Takið eftir því að hún segir hér að hún muni "senda fjölmiðlum afrit af okkar samskiptum", en kvartar síðan í viðtalinu yfir að þessi samskipti séu gerð opinber.
Fleiri samskipti eru tíunduð í greinargerðinni og það því augljóslega bláköld lygi að Jónínu hafi ekki verið svarað.
Tvískinnungur
Jónína segir um dónaskap sinn í garð gagnrýnenda sinna:
Ég er engin liðleskja, ég á það til að hafa skap, og ég skammast mín ekkert fyrir það skap, ég vil ekki búa í samfélagi þar sem allir eru flatir og engin segir neitt. Og ég sagði hluti til hans í bréfi, að hann væri ekki starfi sínu vaxinn, og ég biðst bara afsökunar á því. Ég sagði til hans í bréfi..að mér þættu þessar aðdróttanir Svans Sigurbjörnssonar læknis mjög ómálefnalegar og benda til þess að annaðhvort væri maðurinn [ekki í lagi]...mér finnst það sem hann gerir ekki í lagi, hann eyðir klukkutímum saman í að analísera mína heimasíðu, sumt af því hafði ég ekki einu sinni vit á að væri þar[..] hann hefur tíma til að rannsaka þessa pólsku lækna sem vinna hjá mér, rannsaka hennar feril[..]þetta er einhver áráttuhegðun, gerir lítið úr pólskum læknum.. (feitletrun mín, KT)
Rógburður Jónínu um gagnrýnendur sína hefur verið með ólíkindum og því skemmtilegt til þess að vita að hún skammist sín ekkert fyrir "það skap". Fyrst henni þykir svona hegðun ekki aðeins eðlileg, heldur æskileg - þar sem hún vill ekki "búa í samfélagi þar em allir eru flatir og engin segir neitt" - hlýtur hún að vera hæst ánægð með opinbera og háværa gagnrýni á sig og starfsemi sína, hvort sem hún byggir á sannindum eða ósannindum. Menn geta síðan bara beðist afsökunar einhvern daginn í útvarpi og sagst vera þessi týpa!
Það er síðan áhugavert að hún skuli áfellast Svan fyrir að eyða tíma í að rannsaka umfjöllunarefni kærunnar af alúð. Hún vill sem sagt helst að menn kynni sér ekki hlutina þegar þeir kæra starfsemi hennar, heldur bulli bara út í loftið? Vandvirkni er sem sagt óæskileg "áráttuhegðun"?
Lygi nr. 2
Jónína segir:
Hann [Svanur Sigurbjörnsson læknir] er sjálfur að kenna leikfimi, læknirinn, má hann það? Hvað segjum við íþróttafræðingar og íþróttakennarar? (feitletrun mín, KT)
Svanur Sigurbjörnsson er ekki að kenna leikfimi. Hann er einungis þátttakandi í CrossFit eins og hver annar leikmaður, eins og Jónína veit vel. Hann er heldur ekki að reka fyrirtæki um CrossFit, eins og Jónína hefur haldið fram. Þetta er bláköld lygi sem fólk hefur þó enga sérstaka ástæðu til að efast um og því sérlega undirförul og útpæld lygi. Jónína verður að fá prik fyrir útsjónarsemina.
Fleiri lygar Jónínu um Svan lækni hér og hér.
Snúið út úr nr. 1
Jónína segir um vísindalegar rannsóknir á virkni ristilskolunar:
Hafa læknar vísindalegar niðurstöður um það að þegar við gefum hægðarlosandi lyf, að það skili einhverjum frekari árangri?
Í fyrsta lagi eru til margar ítarlegar rannsóknir um virkni hægðarlosandi lyfja. Í öðru lagi er enginn læknir að halda því fram að notkun þeirra hafi þau áhrif sem Jónína er að lofa að ristilskolunin hafi, svo þetta dæmi kemur málinu ekkert við og er hreinn útúrsnúningur.
Lygi nr. 3
Jónína segir:
Við vitum að ristilkrabbamein er algengara en brjósta og prostatakrabbamein [blöðruhálskrabbamein] samanlagt.
Við höfum engar vísindalegar staðreyndir um af hverju það er.
Samkvæmt tölum American Cancer Society, sem mikið er vitnað í og eru sagðar uppfærðar til dagsins í dag, eru bæði brjóstakrabbamein og blöðruhálskrabbamein hvort um sig næstum tvöfalt algengara en ristilkrabbamein. Jafnvel þó krabbi í ristli sé vandamál beggja kynja, en brjósta- og blöðruhálskrabbi kynjaskiptur vandi, nær ristilkrabbinn ekki að ógna hinum á listanum.
Í skýrslu Oxford háskóla frá 2006 er Evrópa tekin fyrir og þar kemur í ljós að hér hallar ennþá meira á ristilkrabbann en gerir í Bandaríkjunum. Hvor um sig eru brjósta- og blöðruhálskrabbinn fjórum sinnum algengari en ristilkrabbinn.
Tölurnar frá Krabbameinsskrá Íslands hjálpa ekki heldur.
Jónína bullar eða lýgur, eftir því hvernig á það er litið.
Læknar vita síðan að sjálfsögðu ýmislegt um frumubreytingar og krabbamein á þessum svæðum í líkamanum, en vita þó vitaskuld ekki af hverju ristilkrabbi er algengari en brjósta- og blöðruhálskrabbi samanlagðir, þegar það er alls ekki tilfellið að svo sé.
Þetta er hinsvegar eflaust nokkuð sem Jónína heldur fram við alla sem heyra vilja, því það gefur hugmyndinni um sérlega skemmandi áhrif innihalds ristilsins byr undir báða vængi.
Snúið út úr nr. 2
Jónína segir um að hafa sjálf læknast í detox-meðferð:
..má ég segja, það, þarf ég að segja... sem sagt, hvað þarf ég að segja? Þarf ég að fá leyfi læknis til að mega lækna mig? Ég tek ekki þátt í svona bull-umræðu.
Enginn er að segja að hún megi ekki tala vel um meðferðina sína og segja reynslusögur. En ef hún hlustaði eitthvað á læknana sem hún þykist þyrsta eftir samstarfi við, myndi hún vita hvað það er sem verið er að gagnrýna og það snýst ekki um það að hún þurfi leyfi læknis til að "lækna" sig, heldur snýst málið um óstaðfestar og illa ígrundaðar fullyrðngarnar sem hún er með um starfsemi sína og meint áhrif meðferðarinnar.
-
Um sannsögli Jónínu Ben hef ég einnig skrifað þessa pistla:
Vísindi og fræði | Breytt 24.6.2010 kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Jónína og ábyrgðin
15.6.2010 | 00:58
Það er búið að vera um margt áhugavert að fylgjast með Detox-fárinu, ekki síst fyrir þá sem hafa mjög hóflegan áhuga á HM í knattspyrnu. Fólk af öllu tagi tekur afstöðu og sitt sýnist hverjum.
Þeir sem misstu af Jónínu í Bylgjunni í morgun (14.06.10) ættu að smella á hlekkinn og hlusta. Það er mjög skemmtilegt hvernig hún fárast yfir því að sagt sé frá lygum hennar um lækni sem kannast ekkert við að starfa með henni og að meðferðin sé viðurkennd. Slíkt kallar hún að vitna í einkabréf og svarar því til að meðferðin sé viðurkennd í Póllandi - þótt það segi einmitt berum orðum á Detox-síðunni að meðferðin sé viðurkennd lækningaraðferð á Íslandi - sem Pólland breytir litlu um.The Jonina Ben's detox therapy is a recognized medical method in Iceland but was originally developed in Poland and aims at enabling the body to heal itself. #
Síðan talar hún fjálglega um að hún vilji vinna með læknum og kvartar yfir meðferð Matthíasar landlæknis á henni, en tekur ekki undir orð af því sem hann segir, þótt hann jafnvel segist alveg tilbúinn að vinna með henni ef hún breyti bara nokkrum atriðum.
Það er dálítið gaman að bera svör hennar saman við svör fjárglæframanna í bankahruninu sem hún hefur gagnrýnt sem mest fyrir að vera óheiðarlegir og taka ekki ábyrgð. Hún vill nefnilega ekki kannast við að þurfa að fara eftir neinum reglum, kannast ekki við neina gagnrýni á sig og þykist ekki bera ábyrgð á því sem segir á heimasíðu hennar, það sé bara einhver annar sem sjái um hana!
Allir í Detox, það læknar gigt og sykursýki, slíkt dót bara hverfur! -sjá vídeó, takið líka eftir því hvernig hún segist vinna "closely" með læknum, hjúkrunarfræðingum og næringarfræðingum. Um það er einmitt deilt, því engir íslenskt viðurkenndir læknar, hjúkrunarfræðingar eða næringarfræðingar hafa stigið fram til að kannast við þann starfa hjá henni - svo ég viti.
En það má víst ekki gagnrýna falska markaðssetningu og lygar ef sá sem lýgur vill vel og er að ná árangri, það virðist allavega vera afstaða margra á blogginu. Ætli þeir hinir sömu hafi þá afstöðu til allra lygara og lögbrjóta sem meina vel og ná árangri?
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)


ace
apalsson
biggihs
binntho
egill75
evaice
jaherna
zeriaph
hjaltirunar
hoskibui
naflaskodun
prakkarinn
tannibowie
maggadora
orvitinn
mofi
omnivore
petur
sviss
robertb
sindri79
steinn33
stjornuskodun
svanurg
svanurmd
svatli
saemi7
valgardur
vigga
agbjarn
olijon
weapon